Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   þri 01. júní 2021 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Erna Guðrún: Ég er svo stolt af liðinu mínu
Erna Guðrún í leik með FH
Erna Guðrún í leik með FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erna Guðrún Magnúsdóttir, fyrirliði FH, var í skýjunum með að vera komin áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa unnið Pepsi Max-deildarlið Þór/KA í vítakeppni í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 6 -  5 Þór/KA

FH-ingar féllu úr Pepsi Max-deildinni eftir síðasta tímabil en hefur spilað fínan fótbolta í Lengjudeildinni á þessari leiktíð og er nú komið áfram í 8-liða úrslitin.

Það var hörkuleikur í Krikanum í kvöld en staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Ekkert var skorað í framlengingunni en FH hafði sigur í vítakeppninni.

„Ég er svo stolt af liðinu mínu og mér líður ótrúlegavel. Sjúklega gott kvöld hjá okkur og góður leikur," sagði Erna við Fótbolta.net.

Hún segir leikmenn ekki hafa fundið fyrir stressi fyrir leikinn að mæta Pepsi Max-deildarliði.

„Nei, í raun ekki. Við vorum frekar spenntar að fá að máta okkur við eitthvað lið í Pepsi-deildinni. Við vorum búnar að leggja upp hvernig við vildum hafa þetta og fókusa mikið á þennan leik."

„Gríðarlega sátt og við vorum ótrúlega flottar í kvöld. Þetta var skemmtilegur leikur, Þór/KA voru mjög góðar en ég er mjög stolt af liðinu mínu."


Erna segir að liðið hafi leyst vel úr pressunni sem Þór/KA setti á þær og að lokum hafi það verið sturlað að vinna þetta í vítakeppni í Krikanum.

„Nei, en þær áttu kafla í seinni hálfleik þar sem þær settu svolítið mikla pressu á okkur. Ekkert dauðafæri en fannst við leysa úr því og vinna okkur aftur inn í leikinn."

„Það var smá stress en sturlað. Við erum spenntar að fá hvaða lið sem er og vonandi á þessum fallega velli,"
sagði hún í lokin.
Athugasemdir
banner
banner