Kristín Dís er í hópnum. Hún var valin síðasta haust í landsleiki en á eftir að spila sinn fyrsta landsleik.
Landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins, Þorsteinn Halldórsson, tilkynnti í dag 23 manna leikmannahóp sem leikur tvo æfingaleiki gegn Írlandi í júní.
Fótbolti.net ræddi við hann eftir blaðamannafund í dag og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum að ofan.
Fótbolti.net ræddi við hann eftir blaðamannafund í dag og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum að ofan.
Af hverju eru þetta tveir leikir gegn sama liði?
„Einfalda svarið er covid. Við vildum spila á Íslandi og ætluðum að spila við tvær þjóðir. Svo á endanum var það of mikið vesen og við náðum saman við Írland að spila tvo leiki gegn þeim. Ég er mjög sáttur við þá lendingu," sagði Steini.
Steini segir að um gott lið sé að ræða en það íslenska sé þó eitthvað hærra á styrkleikalista.
Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir eru komnar af stað með sínum liðum erlendis en þær voru ekki valdar í þetta skiptið.
„Ég lít alltaf á að það sé í höndum leikmanna að komast inn í landsliðið. Þó þær séu búnar að eiga flottan og farsælan feril með landsliðinu þá er ekki sjálfgefið að þær séu valdar. Þær eru klárlega leikmenn sem ég horfi til og fylgist náið með."
Þorsteinn var spurður út í Ingibjörgu Sigurðardóttur, Önnu Björk Kristjánsdóttur, Dagnýju Brynjarsdóttur og Svövu Rós Guðmundsdóttur.
Anna Björk var ekki valin í þetta verkefni en hinar þrjár koma inn í hópinn frá Ítalíu verkefninu.
„Ég er að skoða fleiri leikmenn, ég sá Önnu Björk á Ítalíu og ég vildi gefa Kristínu (Dís Árnadóttur) tækifærið núna. Val á landsliði er ekki endanlegt, fyrir framhaldið. Svona er hópurinn í þessu verkefni. Frammistaða leikmanna núna hefur áhrif á næsta val."
Hann var svo ítarlega spurður út í Amöndu Andradóttur sem er ekki í leikmannahópnum.
Loks var hann spurður út í það að Þórður Þórðarson var að hætta með U19 landsliðið en Steini benti fréttaritara á að spyrja Þórð þeirra spurninga.
Athugasemdir