banner
   þri 01. júní 2021 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Onana á leið til Arsenal
Andre Onana er á leið til Arsenal
Andre Onana er á leið til Arsenal
Mynd: Getty Images
Andre Onana, markvörður Ajax í Hollandi, er að ganga í raðir Arsenal en það er ítalski íþróttafréttamaðurinn Nicolo Schira sem segir frá þessu á Twitter.

Onana er 25 ára gamall og kemur frá Kamerún en hann ólst upp hjá spænska stórliðinu Barcelona.

Ajax fékk hann þaðan árið 2015 og hefur hann verið með betri markvörðum Evrópu síðustu árin.

Hann er nú að ganga í raðir enska félagsins Arsenal og mun skrifa undir samning til 2024 með möguleika á að framlengja um annað ár til viðbótar.

Staðan er þannig í dag að Onana er í banni sem gildir til febrúar á næsta ári eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Onana kveðst hafa ruglast á lyfjum en hann ætlaði sér að taka verkjalyf en tók lyf sem voru í eigu kærustunnar. Hann áfrýjaði og er beðið eftir niðurstöðu.

Kaupverðið er 7,75 milljónir punda ef íþróttadómstóllinn dæmir honum í hag og styttir bannið eða dregur það til baka en aðeins 1,7 milljónir punda ef bannið stendur.
Athugasemdir
banner
banner
banner