Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. júní 2021 07:00
Aksentije Milisic
Sarri fundar með Lazio
Mynd: Getty Images
Samkvæmt Sky Sports Italia, þá er Maurizio Sarri að funda með Igli Tare, sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá Lazio, þessa daganna.

Sarri hefur verið orðaður við hin ýmsu lið í Serie A en margir þjálfarar eru að hverfa á braut og miklar breytingar í gangi á Ítalíu.

Simone Inzaghi tók við Inter Milan á dögunum og í kjölfarið varð Sarri strax sá líklegasti til að taka við Lazio.

Lazio hafði samband við Sinisa Mihajlovic, þjálfara Bologna, en nú virðist sem að Maurizio Sarri sé skotmark númer eitt.

Sarri var rekinn frá Juventus í fyrra og hefur hann verið án starfs síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner
banner