Miðjumaðurinn John Fleck hefur greinst með Covid-19 en hann er í æfingabúðum skoska landsliðsins í La Finca á Spáni.
Þessi 29 ára leikmaður er nú kominn í einangrun og ferðast ekki með í æfingaleik gegn Hollandi annað kvöld.
Skoska knattspyrnusambandið segir að allir aðrir leikmenn hafi fengið neikvæða niðurstöðu úr skimun sem var framkvæmd eftir að Fleck greindist.

Skotar eru að búa sig undir EM alls staðar en liðið mætir Tékklandi á Hampden vellinum í Glasgow þann 14. júní. Skotar eru að taka þátt í stórmóti í fyrsta sinn í 23 ár.
Fleck er leikmaður Sheffield United.
Athugasemdir