mið 01. júní 2022 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ekitike búinn að samþykkja samning hjá Newcastle
Mynd: Getty Images

Newcastle United er að ganga frá kaupum á Hugo Ekitike sem er búinn að samþykkja fimm ára samning við félagið.


Ekitike er bráðefnilegur sóknarmaður sem á tvítugsafmæli eftir þrjár vikur. Hann skoraði 11 mörk í 26 leikjum með Reims í Frakklandi og er nokkuð eftirsóttur.

West Ham, Manchester United og Borussia Dortmund eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Ekitike en Newcastle var alltaf talið leiða kapphlaupið.

Newcastle og Reims eiga eftir að komast að samkomulagi en ljóst er að Reims vill rúmlega 30 milljónir evra fyrir sinn mann.

Newcastle var næstum búið að kaupa Ekitike í janúar en tókst ekki að ljúka félagaskiptunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner