Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júní 2022 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðsþjálfarinn bendir Lewandowski í áttina að Liverpool
Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Robert Lewandowski ætlar sér að yfirgefa Bayern München í sumar.

Lewandowski er búinn að fá nóg hjá Bayern og langar að fá nýja áskorun áður en ferlinum lýkur.

Lewandowski er búinn að vera mest orðaður við Barcelona, en pólski landsliðsþjálfarinn vill að hann fari til Englands og nánar tiltekið til Liverpool.

„Ég vil sjá Lewandowski fara til Liverpool þar sem ég er stuðningsmaður félagsins," sagði Czeslaw Michniewicz, landsliðsþjálfari Póllands, við fréttamenn.

Hinn 33 ára gamli Lewandowski hefur verið einn besti sóknarmaður Evrópu síðustu ár. Hann þekkir nú Jurgen Klopp ágætlega þar sem þeir unnu saman hjá Borussia Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner