Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 01. júní 2022 11:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mane velur Bayern frekar en peningana í París
Sadio Mane.
Sadio Mane.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sadio Mane er sagður ætla að hafna hærra tilboði frá franska félaginu Paris Saint-Germain til þess að ganga í raðir Bayern München.

Samkvæmt þýska fjölmiðlinum Bild, þá vill Mane vera aðalmaðurinn hjá Bayern München, stjarnan í þeirra liði frekar en að fara til PSG sem er með margar stórstjörnur í sínu liði.

Sóknarmaðurinn Robert Lewandowski er í augnablikinu leikmaður Bayern, en hann vill fara til þess að fá nýja áskorun.

Það er það sama með hinn þrítuga Mane; hann vill yfirgefa Liverpool eftir sex ára veru til þess að fá nýja og ferska áskorun á sínum ferli. Mane hefur skorað 120 mörk í 269 leikjum með Liverpool og unnið allt sem hægt er að vinna.

Það er sagt að Liverpool sé að biðja um 42,5 milljónir punda fyrir Mane sem er sagður mjög spenntur fyrir verkefninu í Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner