Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júní 2022 16:40
Ívan Guðjón Baldursson
Oliver framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Sigurjónsson er búinn að framlengja samning sinn við Breiðablik til tveggja ára og verður því áfram hjá félaginu á þessari leiktíð, þeirri næstu og þarnæstu.


Oliver er 27 ára gamall og hefur alla tíð leikið fyrir Breiðablik í íslenska boltanum en reyndi fyrir sér hjá Bodö/Glimt fyrir nokkrum árum. Sú tilraun bar ekki árangur og sneri Oliver aftur til Kópavogs.

Oliver var mikið efni á yngri árum og bar fyrirliðaband U21 landsliðsins eftir að hafa verið lykilmaður upp í gegnum öll yngri landsliðin. Hann á aðeins tvo A-landsleiki að baki en 50 leiki fyrir yngri liðin.

Þessi kröftugi varnartengiliður hefur skorað 8 mörk í 140 keppnisleikjum með Breiðablik. Hann er lykilmaður í liði Blika og hefur spilað alla deildarleiki tímabilsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner