Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júní 2022 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
Robertson: Erum vinir þeirra fyrir og eftir leik
Mynd: EPA

Andy Robertson fyrirliði Skotlands er klár í slaginn fyrir mikilvægan umspilsleik gegn Úkraínu í kvöld.


Það geisar stríð í Úkraínu og býst Robertson við því að allir utan Skotlands muni halda með Úraínumönnum í kvöld. Skotar ætli sér þó ekki að gefa neitt eftir.

„Ef þeir væru að spila við hvaða aðra þjóð sem er þá myndi ég halda með þeim, en því miður þá eru þeir að spila við mína þjóð og við munum reyna allt til að vinna þennan leik," sagði Robertson.

„Við erum vinir þeirra fyrir og eftir leik en í 90, eða 120, mínútur munum við gera allt til að sigra. Við munum berjast til að láta okkar HM drauma rætast."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner