Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 01. júní 2022 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling orðaður við Chelsea og Real Madrid
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Raheem Sterling er mögulega á förum frá Manchester City núna í sumar.

Hinn 27 ára gamli Sterling mun funda með stjórnendum Man City eftir landsleikjagluggann þar sem rætt verður um það hvort hann muni endurnýja samning sinn eða róa á önnur mið.

Núgildandi samningur Sterling við Man City rennur út eftir næsta tímabil.

Sterling, sem er 27 ára, skoraði 17 mörk á tímabilinu sem var að klárast en var ekki í mjög stóru hlutverki eins og sást bersýnilega undir lok tímabilsins þegar hann byrjaði ekki í mikilvægustu leikjunum.

Hann er núna búinn að vera í sjö ár hjá City og gæti hann ákveðið að róa á önnur mið.

Samkvæmt Times, þá eru Evrópumeistarar Real Madrid með nokkuð mikinn áhuga á honum Chelsea er að fylgjast með stöðu hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner