Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 01. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham reynir við miðvörð Rennes
Mynd: EPA

West Ham gengur vel í viðræðum við Rennes um kaup á miðverðinum Nayef Aguerd.


Aguerd er 26 ára landsliðsmaður Marokkó sem hefur verið fastamaður í liði Rennes síðustu tvö ár.

Aguerd, sem getur einnig spilað sem vinstri bakvörður, vill reyna fyrir sér í enska boltanum þar sem hann mun berjast við Craig Dawson og Issa Diop um sæti í byrjunarliðinu.

David Moyes stjóri West Ham áttar sig á mikilvægi þess að breikka leikmannahópinn til að eiga möguleika á að endurtaka frábæran árangur í Evrópukeppni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner