Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 01. júlí 2018 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Cantona heldur áfram að gera grín að Neymar
Neymar lá mikið gegn Serbum.
Neymar lá mikið gegn Serbum.
Mynd: Getty Images
Eric Cantona gerði grín af hárgreiðslu brasilísku stórstjörnunnar Neymar eftir opnunarleik Brasilíu á heimsmeistaramótinu. Cantona líkti hári Neymar við spaghettí við góðar undirtektir netheima.

Nú hefur Cantona gengið skrefinu lengra og gert grín að ótrúlega dramatískum leikaraskap Neymar, sem var liggjandi í jörðinni nánast allan leikinn er Brassar lögðu Serba að velli, 2-0.

Cantona gerði myndband þar sem hann segir Neymar vera hæfileikaríkan knattspyrnumann en gagnrýnir leikaraskap hans.

„Þetta er nýja ferðataskan mín. Ég skírði hana Neymar. Það er útaf litnum, en aðallega útaf þessu; Þú þarft varla að snerta hana til að hún snúist í hring eftir hring í marga klukkutíma," segir Cantona í myndbandinu og sýnir hvernig taskan snýst.

„Neymar, þú ert frábær leikmaður og magnaður leikari, en þú verður að passa þig aðeins. Ef þú færð högg á hægri öxlina, þá geturðu ekki kvartað og kveinað og haldið utan um vinstri kinnina."



Athugasemdir
banner
banner