Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. júlí 2018 13:45
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois ýjar að brottför til Real Madrid
Mynd: Getty Images
Tími Thibaut Courtois hjá Chelsea virðist vera á enda. Belgíski markvörðurinn vill flytja til Madrídar til að vera meira með börnunum sínum.

Courtois hefur lengi verið orðaður við brottför frá Chelsea og segist helst vilja fara til Real Madrid.

„Það er ákveðinn áfangastaður sem er í miklu uppáhaldi. Ég hef verið að skoða möguleikana en ég ætla ekki að taka ákvörðun fyrr en eftir heimsmeistaramótið," sagði Courtois samkvæmt Mirror.

„Börnin eru mér mikilvægust, ég hef ekki séð þau mikið síðustu 18 mánuði. Facetime er sniðugt en það er ekki það sama og að horfa á börnin sín vaxa úr grasi. Þau munu ráða því hvert ég flyt næst, ég þarf meiri tíma með þeim."

Courtois á eins árs strák og tveggja ára stelpu með fyrrverandi kærustu sinni sem býr í Madríd.

Chelsea er þegar að undirbúa tilboð í Alisson Becker, brasilískan markvörð Roma, sem á að fylla í skarð Courtois.
Athugasemdir
banner
banner