Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. júlí 2018 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rakitic: Modric er frá annari plánetu
Mynd: Getty Images
Ivan Rakitic og Luka Modric eru partur af gífurlega sterkri miðju króatíska landsliðsins sem mætir því danska í kvöld.

Rakitic var tekinn í viðtal af BBC fyrir leikinn og hrósaði þar Modric í hástert.

„Luka og Andres komu frá annari plánetu til að spila fótbolta með okkur. Þeir eru meðal bestu leikmanna sögunnar í sinni stöðu," sagði Rakitic.

„Það hefur verið sannur heiður að spila með Andres síðustu fjögur ár í Barcelona og með Luka síðustu ellefu ár í landsliðinu. Ef ég myndi búa til fótboltalið, þá væru þeir báðir í því.

„Andres er einn af mínum bestu vinum og ég lít á Luka sem stóra bróður minn. Luka er besti leikmaður í sögu Króatíu og hann er frábær manneskja og góður leiðtogi. Við fylgjum honum."


Króatía rúllaði yfir dauðariðilinn svokallaða og endaði með fullt hús stiga eftir sigra gegn Nígeríu, Argentínu og Íslandi.

Modric er búinn að vera í algjöru lykilhlutverki og skoraði þrjú mörk í riðlakeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner