Arsenal er í viðræðum við sóknarsinnaða miðjumanninn Yacine Brahimi en Sky Sports greinir frá þessu í dag.
Hinn 29 ára gamli Brahimi er samningslaus en samningur hans hjá Porto var að renna út.
Hinn 29 ára gamli Brahimi er samningslaus en samningur hans hjá Porto var að renna út.
Viðræður eru farnar af stað en þær eru þó ekki langt á veg komnar.
Brahimi, sem er frá Alsír, kom til Porto frá spænska félaginu Granada árið 2014.
Hann hefur síðan þá skorað 53 mörk í 209 leikjum en á síðasta tímabili skilaði hann þrettán mörkum í 49 leikjum þegar Porto endaði í öðru sæti í Portúgal á eftir Benfica.
Athugasemdir