Heimavöllurinn opinberaði val sitt á úrvalsliði fyrri hluta Inkasso-deildarinnar í gær. Bandaríkjakonan Murielle Tiernan hefur farið á kostum í framlínu Tindastóls og var valin besti leikmaður fyrstu 9 umferða. Murielle er markahæst í deildinni en hún hafði skorað 12 mörk í 8 leikjum eftir fyrstu 9 umferðirnar.
Þáttastýrur Heimavallarins, þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir heyrðu hljóðið í þessum magnaða leikmanni sem hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenska boltann en Murielle átti einnig frábært sumar í fyrra og átti stóran þátt í að Tindastóll vann sig upp í Inkasso-deildina. Þá skoraði hún 24 mörk í 12 leikjum og var í kjölfarið valin best af þjálfurum og fyrirliðum í deildinni.
Þú getur hlustað á viðtalið við Murielle í spilaranum hér að ofan eða hlustað á nýjasta Heimavöllinn í heild sinni með því að smella hér
Í viðtalinu segir hún meðal annars frá fótboltasumrinu, markmiðum Tindastóls, lífinu á Sauðárkróki, ferðalögum á undirbúningstímabilinu og fleiru.
Athugasemdir