sun 01. ágúst 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona ætla að gera lokatilraun að semja við Moriba
Moriba fagnar hér með Dembele og Messi
Moriba fagnar hér með Dembele og Messi
Mynd: Getty Images
Ilaix Moriba er bráðefnilegur leikmaður Barcelona. Hann er aðeins 18 ára gamall en hann lék 18 leiki með Barcelona á síðustu leiktíð.

Samningurinn hans við félagið rennur út næsta sumar og hefur hann verið í viðræðum við Barcelona um framlengingu á samningi sínum.

Það er talið að félagið og leikmaðurinn eigi erfitt með að komast að samkomulagi þar sem launakröfur hans séu alltof háar. Hann mun æfa með varaliðinu þangað til samningar verða í höfn.

Barcelona ætlar að gera lokatilraun til að semja við hann. Félagið hefur mikinn áhuga á að halda honum en ef það gengur ekki mun Barcelona selja hann í sumar. Manchester City og Chelsea eru sögð hafa áhuga á leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner