Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. ágúst 2021 18:00
Victor Pálsson
Giroud skoraði með fyrstu snertingunni í treyju Milan
Mynd: EPA
Olivier Giroud skoraði sitt fyrsta mark fyrir lið AC Milan í gær en hann lék þá með liðinu í æfingaleik gegn Nice.

Giroud elskar fátt meira en að skora mörk en hann gekk í raðir Milan frá Chelsea í sumarglugganum.

Það tók Giroud ekki nema einn leik að skora sitt fyrsta mark en hann lék ekki í fyrsta æfingaleik liðsins gegn Modena sem vannst 5-0.

Leiknum um helgina lauk með 1-1 jafntefli og skoraði Giroud jöfnunarmark á 66. mínútu.

Það athyglisverðasta er að Giroud skoraði með sinni fyrstu snertingu fyrir ítalska liðið.

Frakkinn hafði aðeins verið á vellinum í fimm mínútur en hann kom inná fyrir Rafael Leao stuttu áður.

Næsti leikur Milan er þann 4. ágúst en liðið mætir þá Valencia einnig í æfingaleik.
Athugasemdir
banner