Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. september 2021 19:02
Brynjar Ingi Erluson
Alfreð á skotskónum í sigri Augsburg
Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg í dag
Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg í dag
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason skoraði í 2-1 sigri Augsburg á FC Heidenheim er liðin áttust við í æfingaleik í dag.

Alfreð spilaði í fyrstu umferð þýska bikarsins í byrjun ágúst en missti svo af fyrstu tveimur leikjum deildarinnar vegna meiðsla.

Hann var á bekknum gegn Bayer Leverkusen í síðustu umferð en kom ekki við sögu.

Framherjinn var ekki í íslenska landsliðinu fyrir leikina þrjá í september en virðist þó vera að finna taktinn. Hann skoraði fyrra mark Augsburg í 2-1 sigri á Heidenheim.

Markið kom á 14. mínútu leiksins en honum var síðan skipt af velli á 59. mínútu.

Næsti leikur Augsburg í deildinni er 11. september gegn Union Berlín.


Athugasemdir
banner