Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. september 2021 14:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Breiðabliks í Króatíu: Hildur og Taylor koma inn
Selma Sól Magnúsdóttir
Selma Sól Magnúsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri leikur Breiðabliks og Osijek hefst klukkan 16:00. Leikurinn fer fram í Króatíu og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá er hann einnig í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Smelltu hér til að fara beina textalýsingu!!!

Breiðablik vann litháenska liðið Gintra í úrslitaleik fyrstu umferðar forkeppninnar á meðan króatíska liðið lagði Anderlecht.

Breiðablik mætti Keflavík á fimmtudag í síðasta deildarleik sínum fyrir leikinn í dag. Breiðablik gerir tvær breytingar á sínu liði frá þeim leik. Þær Hildur Antonsdóttir og Taylor Marie Ziemer koma inn í liðið.

Á bekkinn fer Birta Georgsdóttir. Samkvæmt vef UEFA stillir Breiðablik upp í 4-3-3 og er Selma Sól Magnúsdóttir í framlínunni með Tiffany og Öglu Maríu. Samkvæmt skýrslunni á vef UEFA er Breiðablik einungis með fjóra varamenn; þær Vigdísi Eddu Friðriksdóttur, Birtu Georgsdóttur, Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur og Birnu Kristjánsdóttur.

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Taylor Marie Ziemer
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Tiffany Janea Mc Carty
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
21. Hildur Antonsdóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Smelltu hér til að fara beina textalýsingu!!!
Athugasemdir
banner
banner
banner