Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 01. september 2021 11:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fati tekur við tíunni hjá Barcelona
Messi og Fati
Messi og Fati
Mynd: Getty Images
Lionel Messi yfirgaf herbúðir Barcelona í síðasta mánuði eftir mjög svo farsælan tíma hjá félaginu.

Messi var í treyju númer tíu flest þau ár sem hann var hjá Barcelona og hefur verið rætt hver yrði sá næsti til að klæðast treyju númer tíu hjá Börsungum.

Í dag var það opinbert að ungstirnið Ansu Fati mun klæðast treyju númer tíu.

Fati er átján ára Spánverji sem á rætur að rekja til Gíneu-Bissá. Hann er uppalinn hjá Sevilla og Barcelona og lék sinn fyrsta leik með Barca árið 2019. Þá á hann að baki fjóra A-landsleiki.

Á síðustu leiktíð glímdi hann við mjög erfið meiðsli en er allur að koma til.
Athugasemdir
banner
banner
banner