Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. september 2021 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Granit Xhaka með veiruna - Missir af næstu leikjum Sviss
Granit Xhaka
Granit Xhaka
Mynd: EPA
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal á Englandi, er með kórónaveiruna og verður því ekki með Sviss í næstu leikjum.

Xhaka er fyrirliði svissneska landsliðsins en hann greindist með veiruna í dag og var sendur í einangrun eftir að niðurstöður bárust.

Það er því ljóst að hann verður ekki með Sviss gegn Grikklandi í kvöld.

Hann gæti einnig misst af leikjunum gegn Ítalíu og Norður-Írlandi í undankeppni HM en þeir leikir fara fram þann 5. og 8. september næstkomandi.

Xhaka er mikilvægur hlekkur í liði Arsenal sem hefur tapað fyrstu þremur leikjunum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner