Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. september 2021 21:36
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin hjá Ronaldo: Tveir skallar á lokamínútunum
Cristiano Ronaldo rífur sig úr treyjunni og fagnar sigurmarkinu
Cristiano Ronaldo rífur sig úr treyjunni og fagnar sigurmarkinu
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er markahæsti landsliðsmaður frá upphafi eftir að hann skoraði bæði mörk portúgalska landsliðsins í 2-1 sigri á Írlandi í kvöld.

Það var ekki útlit fyrir að hann myndi bæta metið í kvöld. Hann klúðraði víti á 15. mínútu og var liðið að tapa þegar lítið var eftir af leiknum.

Á 89. mínútu dró til tíðinda. Hann skallaði fyrirgjöf Goncalo Guedes í netið. Þar með búinn að bæta markametið og það gaf honum enn meiri orku því á 95. mínútu kom sigurmarkið.

Joao Mario átti fyrirgjöf og stökk Ronaldo yfir varnarmann Írlands og skallaði boltanum í netið. Hægt er að sjá bæði mörk hans hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner