Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 01. september 2022 14:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arsenal með annað tilboð í Luiz
Mynd: EPA
Arsenal ætlar að bjóða aftur í Douglaz Luiz leikmann Aston Villa. Fyrr í dag var greint frá því að Arsenal hefði boðið 20 milljónir punda í leikmanninn en Aston Villa vill ekki missa leikmanninn. Talið er að nýja tilboðið muni hljóða upp á 25 milljónir punda.

Luiz er 24 ára gamall brasilískur miðjumaður og vill Arsenal fá hann til að auka breiddina á miðsvæðinu. Mo Elneny er meiddur og Thomas Partey fjarri góðu gamni.

Glugginn lokar klukkan ellefu á Englandi og því hefur Arsenal ekkert alltof langan tíma til að ganga frá kaupunum. Samningur Luiz við Aston Villa rennur út næsta sumar og er hann sagður vilja fara til Arsenal.

Aston Villa er að fá belgíska miðjumanninn Leander Dendoncker frá Wolves.
Athugasemdir
banner
banner