Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 01. september 2022 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Aubameyang og Dest æfðu ekki - Uppteknir í læknisskoðun
Mynd: EPA

Barcelona er búið að staðfesta að Pierre-Emerick Aubameyang, Sergino Dest og Abde Ezzalzouli hafi ekki æft með hópnum í dag því þeir séu uppteknir við að ljúka við félagsskipti.


Aubameyang er á leið til Chelsea á meðan Dest fer til AC Milan og Abde til Osasuna.

Chelsea er að kaupa 33 ára gamlan Aubameyang í tilraun til að leysa vandamálin í sóknarleik félagsins.

Milan vantar hægri bakvörð eftir að Alessandro Florenzi meiddist illa og mun Dest berjast við Davide Calabria um byrjunarliðssæti í vetur.

Memphis Depay og Miralem Pjanic mættu báðir á æfingu í dag og er búist við að þeir verði eftir hjá félaginu þrátt fyrir tilraunir til að losna við þá.


Athugasemdir
banner
banner