Ben Brereton Diaz verður áfram hjá Blackburn samkvæmt heimildarmönnum Sky Sports innan raða félagsins.
Blackburn er búið að hafna kauptilboðum frá bæði Fulham og Everton á síðustu dögum og ætlar ekki að selja leikmanninn á síðustu klukkustundum sumargluggans.
Brereton á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Blackburn og getur því skipt um félag frítt næsta sumar. Blackburn telur meiri hag í því að nota Brereton til að hjálpa liðinu að komast upp í úrvalsdeildina frekar en að selja hann fyrir skammtíma gróða.
Blackburn vildi um 20 milljónir punda fyrir Brereton en ekkert félag virðist reiðubúið til að borga þá upphæð.
Þessi landsliðsmaður Síle mun því geta valið sér sjálfur næsta áfangastað eftir áramót.
Athugasemdir