Svissneski miðjumaðurinn Denis Zakaria er á leið til Chelsea á lánssamningi með kaupmöguleika.
Zakaria var keyptur til Juventus í janúar en tókst ekki að hrífa menn þar á bæ. Juve er með alltof marga miðjumenn og kemur sér vel fyrir félagið að losa um Zakaria.
Zakaria spilaði þrettán leiki með Juve á síðustu leiktíð og hefur aðeins komið við sögu í tveimur á nýju tímabili þar sem hann er ekki í byrjunarliðsáformum Max Allegri.
Ekki er greint frá því hversu mikið Chelsea greiðir fyrir lánið eða hvað Zakaria ku kosta ef félagið vill kaupa hann næsta sumar. Juve borgaði gjafaprís fyrir leikmanninn í janúar, eða tæpar 10 milljónir evra.
Zakaria er í læknisskoðun á Ítalíu og verður lítið mál að ná félagsskiptunum í gegn fyrir gluggalok í kvöld.
Athugasemdir