Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 01. september 2022 16:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dubravka búinn að skrifa undir hjá Man Utd
Mynd: EPA
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því að Martin Dubravka sé búinn að skrifa undir samning við Manchester United.

Dubravka kemur á lánssamningi frá Newcastle og getur Man Utd keypt markvörðinn á meðan lánssamningnum stendur.

Dubravka er 33 ára Slóvakí sem hefur verið á mála hjá Newcastle í fjögur ár. Hann var aðalmarkvörður liðsins stærstan hluta þess tíma.

Man Utd vill fá markvörð til að vera til vara fyrir David de Gea. Eins og staðan er núna, áður en félagsskiptin hafa verið staðfest, er Tom Heaton varamarkvörður Man Utd.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner