Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. september 2022 20:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Man Utd með þrjá sigra í röð
Sancho fagnar marki sínu í leiknum í kvöld.
Sancho fagnar marki sínu í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Leicester City 0 - 1 Manchester Utd
0-1 Jadon Sancho ('23 )

Manchester United fór þetta tímabil hörmulega af stað - með tveimur slæmum töpum - en núna virðast þeir vera að hrökkva í gang.

Þeir byrjuðu á því að leggja erkfjendur sína í Liverpool að velli og eru núna búnir að vinna tvo 1-0 sigra í röð.

Þeir heimsóttu Leicester í kvöld og þar var það Jadon Sancho sem gerði eina mark leiksins eftir undirbúning frá Marcus Rashford.

Leicester átti sínar rispur vel en United varðist vel líkt og í síðustu leikjum sínum.

United er núna með níu stig eftir fimm leiki og er liðið núna fyrir ofan Liverpool í fimmta sæti. Leicester hefur farið gríðarlega brösulega af stað og er með eitt stig á botninum. Leicester hefur ekkert verslað í sumar til þess að rétta fjárhagsstöðu sína af en þessi byrjun er mikið áhyggjuefni fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner