Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 17:38
Ívan Guðjón Baldursson
Everton með tilboð í Ben Brereton Diaz
Mynd: EPA

Everton ætlar að stela Ben Brereton Diaz af nýliðum Fulham sem hafa verið í viðræðum um kaup við Blackburn Rovers í dag.


Everton er meðal félaga sem hafa reynt að krækja í Brereton í sumar en án árangurs. West Ham, Nice og Sevilla voru meðal annars orðuð við þennan framherja sem getur leikið í fremstu víglínu og á báðum köntum.

Brereton er 23 ára gamall landsliðsmaður Síle og rennur samningur hans við Blackburn út næsta sumar. 

Líklegt er að 15 til 20 milljónir punda nægi til að kaupa Brereton, þó Blackburn gæti haldið honum í tilraun sinni til að komast aftur upp í úrvalsdeildina.


Athugasemdir
banner
banner