Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. september 2022 09:05
Elvar Geir Magnússon
Liverpool reynir að fá Arthur Melo lánaðan
Arthur Melo.
Arthur Melo.
Mynd: Getty Images
Liverpool er að reyna að fá miðjumanninn Arthur Melo lánaðan frá Juventus í dag. BBC greinir frá þessu,

Það er enn ýmislegt óklárað til að skiptin geti gengið í gegn en þessi 26 ára Brasilíumaður gæti létt á meiðslavandræðum Liverpool á miðsvæðinu.

Jordan Henderson fór af velli í sigrinum gegn Newcastle vegna meiðsla aftan í læri og Jurgen Klopp segir ljóst að hann verði ekki klár í grannaslaginn gegn Everton á laugardag.

Fyrir voru miðjumennirnir Thiago Alcantara, Naby Keita og Alex Oxlade-Chamberlain á meiðslalista Liverpool.

Í dag er Gluggadagur og skellt verður í lás klukkan 22.

Hér má sjá þegar Arthur Melo er á leið til Liverpool að ganga frá skiptunum:

Athugasemdir
banner
banner
banner