Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 01. september 2022 08:50
Brynjar Ingi Erluson
Milan fær Dest á láni frá Barcelona
Sergino Dest
Sergino Dest
Mynd: EPA
Bandaríski hægri bakvörðurinn Sergino Dest mun spila með ítölsku meisturunum í AC Milan á komandi leiktíð en hann kemur á láni frá Barcelona.

Barcelona keypti Dest frá Ajax fyrir 26 milljónir evra fyrir tveimur árum og hefur hann spilað 72 leiki og gert 3 mörk á tíma sínum þar.

Félagið hefur leitast eftir því að losa sig við hann í sumar en bæði Milan og Manchester United sýndu honum áhuga.

Dest, sem er 21 árs gamall, valdi það að fara til Milan og mun hann ganga í raðir félagsins síðar í dag. Hann flýgur til Mílanó í dag og mun skrifa undir lánssamning sem gildir út tímabilið.

Milan á möguleika á að kaupa hann fyrir 20 milljónir evra á meðan lánssamningurinn er í gildi.


Athugasemdir
banner
banner
banner