Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. september 2022 10:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wolves samþykkir tilboð Aston Villa - Luiz vill fara til Arsenal
Luiz í baráttunni við Cristiano Ronaldo
Luiz í baráttunni við Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA
Það er allt að þróast í þá átt að Douglaz Luiz verði orðinn leikmaður Arsenal fyrir gluggalok. Aston Villa er að ganga frá kaupum á Leander Dendoncker í hans stað og hefur fengið samþykkt kauptilboð í miðjumanninn.

Villa bauð 13 milljónir punda í belgíska landsliðsmanninn og Wolves samþykkti tilboðið. Dendoncker fer í læknisskoðun núna seinni partinn. Ef allt fer á besta veg verður hann tilkynntur nýr leikmaður félagsins í kjölfarið.

Arsenal vill fá Luiz í sínar raðir þar sem Mo Elneny glímir við meiðsli og óvissa í kringum Thomas Partey.

Luiz vill fara til Arsenal og Arsenal er tilbúið að semja við leikmanninn. Það eru þó enn viðræður í gangi á milli félaganna og hefur verið talað um 20 milljóna punda kaupverð.
Athugasemdir
banner
banner