Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. október 2017 22:49
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Okkur er refsað fyrir einu mistökin
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp telur sína menn í Liverpool hafa verið óheppna að gera jafntefli við Newcastle um helgina.

Philippe Coutinho skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleik en Joselu jafnaði skömmu síðar fyrir nýliðana.

Liverpool fékk nokkuð um færi en tókst ekki að koma knettinum í netið.

„Við vorum að skapa okkur færi trekk í trekk og svo gerum við ein mistök og okkur er refsað," sagði Klopp við Sky Sports.

„Andstæðingarnir gerðu miklu fleiri mistök en var ekki refsað. Þegar allt kemur til alls fékk leikmaður Newcastle nafnbótina maður leiksins þó að við höfum verið með boltann 80% af leiknum, eða hvað sem það var mikið."
Athugasemdir
banner
banner
banner