Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 01. október 2021 22:54
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Álfhildur: Sögulegt afrek fyrir Þrótt
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir fyrirliði Þróttar
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir fyrirliði Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur tapaði 4-0 gegn Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikars í kvenna í kvöld. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir fyrirliði Þróttar kom í viðtal eftir leikinn.
"Þetta var auðvitað erfiður leikur og auðvitað stressandi að koma hingað og spila og allt það en mér finnst kannski 4-0 ekki alveg sýna réttu myndina á hvernig leikurinn var. Við vorum oft sterkari á köflum en eins og ég sagði mjög erfiður leikur samt og erfiður andstæðingur en mér fannst kannski 4-0 vera ansi mikið."

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þróttur R.

"Við vorum búnar að ákveða það fyrir leikinn að gefast aldrei upp sama hvernig staðan væri eða sama á hvaða tíma og mér fannst við algjörlega gera það í dag.

Þróttur endaði Íslandsmótið í 3. sæti og komast svo í undanúrslit í bikar. Þetta hafði Álfhildur um árangurinn að segja:
"Já, auðvitað. Auðvitað er leiðinlegt að tapa og hefði verið geggjað að vinna en ég held að við getum bara ekki verið annað en stoltar og ég er ógeðslega stolt af liðinu og stuðningsmennirnir líka. Þetta er bara ótrúlegt, svona sögulegt afrek fyrir Þrótt og ég veit að þeir eru allir stoltir af okkur og ánægðir að koma hingað.

Það var vel mætt í stúkuna í kvöld og stuðningsmenn beggja liða létu í sér heyra allann leikinn.
"Já, auðvitað við vissum það alveg fyrir að þau myndu gefa okkur aukinn styrk og þau hafa gert það í hverjum einasta leik í sumar sem er bara frábært og hefur hjálpað okkur ótrúlega mikið."
Athugasemdir
banner
banner
banner