Luuk de Jong sóknarmaður Barcelona hefur ekki heillað eftir komu sína frá Sevilla á lánssamningi. Hann hefur leikið fimm leiki og aðeins skorað eitt mark.
Barcelona mætti Benfica í Meistaradeildinni í vikunni og steinlá 3-0. Liðið er án stiga eftir tvær umferðir á botni riðilsins. Liðið er í 6. sæti spænsku deildarinnar með 12 stig eftir sex leiki.
De Jong fékk nokkur góð færi gegn Benfica en það gekk ekkert upp hjá honum.
Don Luis Suarez Miramontes, fyrrum leikmaður Barcelona og Ballon d'or sigurvegari skilur ekkert hvað De Jong er að gera í Barcelona og spurði einfaldlega „Hver í ósköpunum mætli með Luuk De Jong?"
Athugasemdir