Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. október 2021 09:45
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Hjörtur dæmir úrslitaleikinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmir úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í kvöld en þá mætast Breiðablik og Þróttur á Laugardalsvelli klukkan 19:15.

Þetta er annar bikarúrslitaleikurinn sem Sigurður Hjörtur dæmir í kvennaflokki en hann dæmdi leik Breiðabliks og Stjörnunnar 2018, leik sem Kópavogsliðið vann 2-1.

Eðvarð Eðvarðsson og Sveinn Þórður Þórðarson eru aðstoðardómarar í kvöld og Arnar Þór Stefánsson er fjórði dómari.

Undanúrslitaleikir karla verða spilaðir á morgun laugardag.

Erlendur Eiríksson dæmir leik ÍA og Keflavíkur sem verður klukkan 12 á Akranesi.

Egill Arnar Sigurþórsson dæmir leik Vestra og Víkings sem verður klukkan 14:30 á Meistaravöllum í Vesturbæ.
Athugasemdir
banner
banner
banner