Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 01. október 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slakur árangur Leicester í september
Lítið sem Rodgers getur klappað fyrir þessa dagana
Lítið sem Rodgers getur klappað fyrir þessa dagana
Mynd: EPA
Leicester tapaði óvænt 1-0 gegn Legia Varsjá í Evrópudeildinni í gær.

EIna mark leiksins skoraði Mahir Emreli. Hann vakti athygli er hann mætti í viðtal í sérmerktum bol eftir leikinn.

September mánuður var erfiður hjá Leicester en liðið vann aðeins einn leik, það var í 16 liða úrslitum deildarbikarsins gegn Millwall.

Annars tapaði liðið gegn Man City, Brighton og nú Legia og gerði jafntefli gegn Napoli og Burnley. Liðið mætir Crystal Palace á útivelli í deildinni á sunnudaginn.


Athugasemdir
banner
banner