Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. október 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmaður WBA í fangelsi fyrir fordóma
Romaine Sawyers
Romaine Sawyers
Mynd: Getty Images
Simon Silwood fimmtugur stuðningsmaður West Bromwich Albion á Englandi hefur fengið átta vikna fangelsisdóm fyrir kynþáttafordóma í garð Romaine Sawyers.

Silwood sendi Sawyers, sem er núna á láni hjá Stoke City, fordómafull skilaboð í janúar á þessu ári eftir 5-0 tap WBA gegn Manchester City.

Hann mun þurfa að sitja inni í fjórar vikur og fjórar skilorðsbundið, hann mun einnig þurfa að borga leikmanninum bætur uppá 500 pund og 500 pund til viðbótar í málskostnað.

Hann hefur einnig fengið lífstíðarbann frá heimaleikjum West Brom.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner