Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. nóvember 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England um helgina - Hvað gerir Liverpool á Villa Park?
Man Utd mætir Bournemouth í fyrsta leik helgarinnar.
Man Utd mætir Bournemouth í fyrsta leik helgarinnar.
Mynd: Getty Images
Liverpool er á toppnum með sex stiga forskot, þeir heimsækja Villa Park á morgun.
Liverpool er á toppnum með sex stiga forskot, þeir heimsækja Villa Park á morgun.
Mynd: Getty Images
Ellefta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina, átta leikir fara fram á morgun, laugardag, og á sunnudag fara fram tveir leikir.

Bournemouth og Manchester United mætast í fyrsta leik helgarinnar, flautað verður til leiks Vitality vellinum klukkan 12:30. Bæði liðin með 13 stig, heimamenn í 9. sæti en gestirnir frá Manchester í 7. sæti.

Sex leikir fara fram klukkan 15:00, Manchester City tekur á móti Southampton. Liðin mættust í deildabikarnum fyrr í vikunni þar hafði City betur, 3-1.

Arsenal fær Wolves í heimsókn á Emirates leikvanginn, heimamenn í 5. sæti með 16 stig, Úlfarnir hins vegar í 12. sæti með 12 stig.

Topplið Liverpool fer í heimsókn á Villa Park þar sem þeir mæta heimamönnum í Aston Villa. Gestirnir í Liverpool eru með sex stiga forskot á Man City. Villa-menn í 15. sæti með 11 stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Sheffield Utd tekur á móti Burnley, West Ham og Newcastle mætast og Brighton fær Norwich í heimsókn. Síðdegisleikurinn á morgun er viðureign Watford og Chelsea, viðureign liðanna hefst klukkan 17:30.

Það eru svo tveir flottir leikir á sunnudaginn eins og fyrr segir. Crystal Palace fær Leicester í heimsókn klukkan, bæði liðin að berjast í efri hluta deildarinnar.

Síðasti leikur 11. umferðar fer af stað klukkan 16:30, þá mætast tvö lið sem hafa ekki byrjað tímabilið vel. Everton og Tottenham mætast á Goodison Park.

Laugardagur 2. nóvember.
12:30 Bournemouth - Man Utd (Síminn Sport)
15:00 Sheffield Utd - Burnley
15:00 West Ham - Newcastle
15:00 Man City - Southampton
15:00 Brighton - Norwich
15:00 Arsenal - Wolves
15:00 Aston Villa - Liverpool (Síminn Sport)
17:30 Watford - Chelsea (Síminn Sport)

Sunnudagur 3. nóvember.
14:00 Crystal Palace - Leicester (Síminn Sport)
16:30 Everton - Tottenham (Síminn Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner