Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. nóvember 2020 13:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Ward-Prowse með sýningu í sjö marka veislu
Mynd: Getty Images
Aston Villa 3 - 4 Southampton
0-1 Jannik Vestergaard ('20 )
0-2 James Ward-Prowse ('33 )
0-3 James Ward-Prowse ('45 )
0-4 Danny Ings ('58 )
1-4 Tyrone Mings ('62 )
2-4 Ollie Watkins, víti ('92 )
3-4 Jack Grealish ('96)

Það var James Ward-Prowse sýningin í fyrri hálfleik á Villa Park í dag. Aston Villa fékk Southampton í heimsókn og var staðan 0-3 í hálfleik.

James Ward-Prowse skoraði tvö og lagði upp í fyrri hálfleiknum. Bæði mörkin hans komu úr aukaspyrnum, frábærar spyrnur! Á 58. mínútu bætti Danny Ings við fjórða marki Southampton og staðan ansi vænleg. Mark Ings var glæsilegt eins og mörk Ward-Prowse.

Á 62. mínútu minnkaði Tyrone Mings muninn og í uppbótartíma skoraði Ollie Watkins annað mark Villa eftir að Jack Grealish krækti í vítaspyrnu. Grealish skoraði svo á 96. mínútu og minnkaði muninn í eitt mark en tíminn var á þrotum.

Niðurstaðan 4-3 fyrir Southampton sem er með þrettán stig í þriðja sæti eins og stendur. Aston Villa er með tólf stig í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner