Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. nóvember 2020 11:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haukur Páll framlengir við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins nú í morgun.

Haukur er 33 ára miðjumaður og varð á föstudag Íslandsmeistari með félaginu í þriðja skiptið.

Af Valur Fótbolti á Facebook:
Haukur gekk í raðir Vals á gamlársdag 2009 og tók við fyrirliðabandinu 2012 af Sigurbirni Hreiðarssyni. Haukur Páll hefur verið afar farsæll á sínum ferli og hefur unnið til fjölda titla og nú síðast Íslandsmeistaratitilinn í þriðja skipti.

Haukur Páll á að baki yfir 300 leiki með Val og er þar með orðinn einn leikjahæsti leikmaður félagsins.


Athugasemdir
banner