Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. nóvember 2020 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Gulli Victor fleygði sér fram og skallaði í netið
Skoraði í öðrum leiknum í röð
Skallamark í dag
Skallamark í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karslruher 3 - 4 Darmstadt

Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Darmstadt í dag þegar liðið heimsótti Karlsruher í þýsku 2. Bundesliga.

Victor skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í síðustu viku þegar hann skoraði í jafntefli gegn Osnabruck.

Hann bætti við öðru marki á markareikninginn þegar hann jafnaði metin í 2-2 á 65. mínútu í dag. Victor var mættur inn á teiginn þegar Tobias Kempe tók aukaspyrnu úti hægra megin. Victor fleygði sér á fyrirgjöf Kempe og skallaði boltanum í netið.

Það var Kempe sjálfur sem tryggði gestunum 3-4 sigur með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Það var annað mark Kempe í leiknum. Darmstadt er með níu stig eftir sex leiki.

Mark Gulla Victors má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner