Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. nóvember 2020 16:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Noregur: Tryggvi með tvö mörk í tveimur byrjunarliðsleikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lilleström 3 - 0 Tromsö
1-0 Fredrik Krogstad
2-0 Fredrik Krogstad, víti
3-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson

Lilleström vann 3-0 sigur á Tromsö í B-deild norska boltans í dag. Um viðureign toppliðsins og liðsins í þriðja sæti var að ræða. Tromsö var með fimm stiga forskot á Sogndal í 2. sætinu fyrir leikinn.

Lilleström leiddi með tveimur mörkum í hálfleik og á 48. mínútu skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson þriðja mark liðsins. Þetta er annað mark Tryggva í þremur leikjum með félaginu, hann hefur skorað í báðum byrjunarliðsleikjunum.

Tryggvi lék fyrstu 79 mínúturnar í leiknum og Björn Bergmann Sigurðarson síðustu 22 mínúturnar. Hjá Tromsö var Adam Örn Arnarsson fjarri góðu gamni.

Lilleström er nú fjórum stigum á eftir Tromsö og á leik til góða þegar sex umferðir eru eftir.

Þá lá Mjöndalen 1-3 á móti Molde í efstu deild. Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leikmannahópi Mjöndalen í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner