Tottenham og Brighton eigast við í enska boltanum þessa stundina og eru heimamenn í Tottenham 2-1 yfir þegar tíu mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.
Tottenham komst í 1-0 en Tariq Lamptey jafnaði. Leikmenn Tottenham mótmæltu harkalega þar sem þeir vildu fá dæmt brot í aðdraganda jöfnunarmarksins.
Graham Scott dómari var afar vel staðsettur þegar brotið meinta átti sér stað en VAR herbergið leiðbeindi honum samt að skoða atvikið betur á skjánum. Scott horfði á skjáinn en ákvað samt að leyfa markinu að standa við mikla furðu áhorfenda heima í stofu.
Atvikið má sjá með að smella hér.
Tottenham 1 - [1] Brighton - Tariq Lamptey 56' from r/soccer
Athugasemdir