Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. nóvember 2022 22:19
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Fyrsti sigur Carrick
Michael Carrick náði í fyrsta sigurinn með Middlesbrough
Michael Carrick náði í fyrsta sigurinn með Middlesbrough
Mynd: Getty Images
WBA vann 1-0 sigur í kvöld
WBA vann 1-0 sigur í kvöld
Mynd: Getty Images
Middlesbrough vann sinn fyrsta leik undir stjórn Michael Carrick er liðið sigraði Hull City, 3-1. Eftirminnilegur sigur hjá lærisveinum Carrick en tvö sjálfsmörk réðu úrslitum í leiknum.

Carrick tók við keflinu hjá Boro fyrir viku síðan eftir að hafa tekið sér ágætis frí frá þjálfun. Hann stýrði sínum fyrsta leik í 2-1 tapi gegn Preston síðustu helgi en í kvöld gat hann fagnað.

Cuba Akpom kom Boro yfir á 30. mínútu áður en Cyrus Christie jafnaði þegar hálftími var eftir. Þremur mínútum síðar Tobias Figureido boltanum í eigið net og þegar tíu mínútur voru eftir gerði Hull annað sjálfsmark og að þessu sinni var það Christie, sem var öflugur fyrir bæði lið í þeim síðari. Lokatölur 3-1 fyrir Boro sem er í 18. sæti með 20 stig.

Sheffield United er komið í 3. sæti deildarinnar eftir 1-0 sigur á Bristol City. Blackburn Rovers hikstaði aðeins og tapaði fyrir Coventry City, 1-0. Blackburn er í 2. sæti með 33 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Bristol City 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Iliman Ndiaye ('49 )
Rautt spjald: George Tanner, Bristol City ('90)

Coventry 1 - 0 Blackburn
1-0 Jamie Allen ('41 )
Rautt spjald: Jake Garrett, Blackburn ('85)

Hull City 1 - 3 Middlesbrough
0-1 Chuba Akpom ('30 )
1-1 Cyrus Christie ('60 )
1-2 Tobias Figueiredo ('63 , sjálfsmark)
1-3 Cyrus Christie ('80 , sjálfsmark)

Luton 0 - 0 Reading

Preston NE 1 - 0 Swansea
1-0 Brad Potts ('30 )

West Brom 1 - 0 Blackpool
1-0 Okay Yokuslu ('85 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 44 27 9 8 80 37 +43 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
17 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
18 QPR 44 13 11 20 41 57 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner