Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. nóvember 2022 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky spáir enska hópnum: Toney, Bowen og Wilson
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA

Það styttist óðfluga í HM í Katar og verða leikmannahóparnir kynntir í síðasta lagi 13. nóvember. Það mega vera 23 til 26 leikmenn í hverjum hóp.


Sky Sports býst við að Gareth Southgate taki 26 leikmenn með sér á lokamótið og er búið að giska á hverjir það verða.

Það er ekki margt sem kemur á óvart í ágiskun Sky sem telur að Ivan Toney, lykilmaður í sóknarlínu Brentford, fái að fara með. Toney gæti því spilað sinn fyrsta landsleik í vetur.

Fréttamenn Sky búast ekki við að Trent Alexander-Arnold, Dominic Calvert-Lewin, Harvey Barnes eða James Maddison verði valdir í hópinn.

Markmenn: Jordan Pickford, Nick Pope, Aaron Ramsdale

Varnarmenn: Eric Dier, Kieran Trippier, Luke Shaw, John Stones, Harry Maguire, Ben Chilwell, Ben White, Conor Coady

Miðjumenn: Declan Rice, Jude Bellingham, Phil Foden, Bukayo Saka, Mason Mount, Jack Grealish, Jordan Henderson, Conor Gallagher, Kalvin Phillips

Sóknarmenn: Harry Kane, Raheem Sterling, Marcus Rashford, Callum Wilson, Jarrod Bowen, Ivan Toney


Enski boltinn - Kaninn keypti sér tíma á Anfield
Athugasemdir
banner
banner