Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. janúar 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
David Silva gæti náð leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Manchester City gerði markalaust jafntefli gegn Crystal Palace í síðustu umferð.

Luka Milivojevic brenndi af vítaspyrnu í uppbótartíma og missti Palace þar með af tækifærinu til að vera fyrsta liðið til að sigra Man City í deildinni.

David Silva var ekki með gegn Watford og kom það niður á leik heimamanna, sem voru hársbreidd frá því að tapa á heimavelli gegn fallbaráttuliði. Silva hefur verið í lykilhlutverki á tímabilinu.

„David Silva æfði í dag og er tilbúinn í leikinn gegn Watford," skrifaði Jose Alvarez Haya, spænskur fréttamaður, á Twitter.

Pep Guardiola vildi ekki tjá sig mikið um batavonir Silva og sagði að miðjumaðurinn myndi snúa aftur þegar hann væri tilbúinn.
Athugasemdir
banner
banner