Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 02. janúar 2018 11:52
Elvar Geir Magnússon
Fagni Lingard var beint að The Sun
Lingard sussar!
Lingard sussar!
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard hefur verið einn ljósasti punkturinn hjá Manchester United og í gær innsiglaði hann sigur gegn Everton þegar hann skoraði annað mark Rauðu djöflanna.

Fagnaðarlæti Lingard vöktu athygli en talið er að þeim hafi verið beint að enska slúðurblaðinu The Sun. Um helgina sagði blaðið að Lingard hefði haldið framhjá kærustu sinni, fyrirsætu sem heitir Jena Frume.

Lingard setti fingur við munninn og „sussaði" á myndavélarnar eftir að hafa skorað markið laglega, auk þess setti hann „rennilás" fyrir munninn með látbragði.

Þá birti hann meðfylgjandi mynd á Twitter eftir leikinn og skrifaði við hana: „Ekki tala of mikið".

The Sun hefur eftir einstæðri móður að hún hafi stundað kynlíf með Lingard í heitum potti á heimili hans stuttu eftir tapleik United gegn Manchester City í síðasta mánuði. Kærasta Lingard, Jena Frume, er búsett í Los Angeles.

Sjá einnig:
Mourinho: Lingard er að taka stökkið
Athugasemdir
banner
banner
banner